Skjalasöfn einstaklinga

Sigríður Guðmundsdóttir (1917-1997), húsmóðir og ritari. KSS 2025/15.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.

  • Safnmark:

    KSS 2025/15

  • Titill:

    Sigríður Guðmundsdóttir

  • Tímabil:

    1930-1970

  • Umfang:

    Fjórar öskjur sem innihalda um 70 sendibréf skrifuð 1930–1970 og handskrifaðar matreiðslubækur.

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2025/15. Sigríður Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Sigríður Guðmundsdóttir (1917-1997), húsmóðir og ritari

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Sigríður Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 16. september 1917. Hún lést á heimili sínu 6. desember 1997. Foreldrar hennar voru Nikólína Hildur Sigurðardóttir, húsmóðir, f. 8. nóv. 1885, d. 28. jan. 1965, og Guðmundur Helgi Guðnason, gullsmiður, f. 6. jan. 1884, d. 10. mars 1953. Bræður Sigríðar voru Bjarni, Gunnar, Kjartan og Guðni sem einn er eftirlifandi af systkinunum.

     

    Sigríður giftist 16. sept. 1939 Halldóri Halldórssyni, prófessor, f. 13. júlí 1911.

    Börn Sigríðar og Halldórs eru 1) Guðmundur Halldórsson, blaðamaður, f. 20. júní 1941. 2) Hildigunnur Halldórsdóttir, kennari, f. 9. maí 1943. 3) Elísabet Halldórsdóttir, bókasafnsfræðingur, 4) Halldór Halldórsson, fjölmiðlafræðingur, f. 1. júlí 1949,

     

    Sigríður stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún vann við skrifstofustörf uns hún giftist og starfaði sem húsmóðir þar til hún hóf störf við Orðabók Háskólans 1968, þar sem hún vann um margra ára skeið.

     

    Heimild: Morgunblaðið 13. desember 1997

  • Varðveislusaga:

    Úr fórum dóttur Sigríðar, Hildigunnar Halldórsdóttur

  • Um afhendingu:

    Úr fórum Hildigunnar Halldórsdóttur (f. 1943) bárust sendibréf móður hennar, Sigríðar Guðmundsdóttir (1917-1997) ásamt handskrifuðum matreiðslubókum. Sendibréfin eru einkum skrifuð frá 1930-1960 frá vinkonum hennar, fjölskyldu sem og Friðnýju Ísaksdóttur vinnukonu á æskuheimili Hildigunnar.

    Á sama tíma gaf Hildigunnur handritasafni skjöl föður síns, Halldórs Halldórssonar. Þar á meðal eru bréf móður Halldórs, Elísabetar Bjarnadóttur, til hans skrifuð eftir að hann var sendur á annað heimili sem barn í kjölfar þess að Elísabet varð ekkja. Lýsa bréfin mikilli sorg og trega við þennan viðskilnað samkvæmt gefanda.

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    Fjórar öskjur; tvær þunnar sem innihalda sendibréf og tvær sem innihalda handskrifaðar matreiðslubækur og matreiðsluuppskriftir

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er öllum heimill

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska og enska

Tengt efni

Athugasemdir

  • Athugasemdir:

    sendibréf, sendibréf vinkvenna

    matreiðslubækur handskrifaðar

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Rakel Adolphsdóttir skráði

  • Dagsetning lýsingar:

    24. mars 2025


Skjalaskrá

askja 1 

  • örk 1: Ásta, ca. 11 sendibréf og 3 kort rituð 1933-1965 frá m.a. London, Malvern girl college Leipzig, Akureyri.
  • örk 2: Friðný, 5 bréf, Akureyri 1950-1957
  • örk 3: Guðmundur Guðmundsson (bróðir), 3 bréf, Reykjavík 1940
  • örk 4: Halldóra skólameistara, 3 bréf, Reykjavík 1949 og 1950, Boston 1950
  • örk 5: Lauga Bald, 5 bréf Stokkhólmur 1946, 6 bréf Reykjavík 1949-1970
  • örk 6: Maja Egilsson, 6 bréf Reykjavík 1959-1960
  • örk 7: „Nikólína amma“, 3 bréf Reykjavík 1940-1942
  • örk 8: „Tóta meistara“ Þórunn Sigurðardóttir Tunnard (1917-2008),
    • 1 bréf, Bretland 1933
    • 8 bréf, Bretland 1942-1946
    • 1 jólakort, ódagsett

 

askja 2

  • Stína, 4 bréf, Reykjavík 1941-1942
  • Gústa B, 2 bréf Reykjavík 1940
  • Gunna Beinteins, 2 bréf Hurðabaki 1931, 1 bréf Reykjavík 1940
  • Atli Ma „æskuvinur“ jólakort 1938
  • Anna S, 1941
  • Sella, Akureyri 1949
  • Björg 1950
  • Colette Lane, Chapell Hill 1966 [enska / english]
  • Helga, 3 bréf Vífilsstaðir 1939-1941
  • Gerður, Reykjavík 1940 – Bóbó 1941
  • Aðalbjörg Skæringsdóttir (1911-1997), tvö bréf Rauðafelli 1933, 1938
  • Högni Torfason, Akureyri 1939
  • Sigríður Guðmundsdóttir til Mundu, Akureyri 1939

askja 3

Handskrifaðar matreiðsluuppskriftir í veski

askja 4

Handskrifaðar matreiðsluuppskriftir, tvær bækur

Prentaðar matreiðslubækur, tvær bækur


Fyrst birt 10.07.2025

Til baka