Stafrænar endurgerðir

Tímarit.isTímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi
Handrit.isHandrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.isBækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka, aðallega frá því fyrir 1900
Íslandskort.isÍslandskort.is
Myndir af gömlum íslandskortum og ágrip af kortasögu

Innlend gagnasöfn

SkemmanSkemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
RafhlaðanRafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Íslenska vefsafniðÍslenska vefsafnið
Íslenskir vefir frá 2004 til dagsins í dag
Leitir.isLeitir.is
Samleit í íslenskum gagnasöfnum
GegnirGegnir
Samskrá íslenskra bókasafna

Erlend gagnasöfn

Finna tímaritFinna tímarit
Skrá yfir tímarit í áskrift Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns
Hvar.isHvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum

Upplýsingavefir

DoktorsritgerðaskráDoktorsritgerðaskrá
Skrá yfir doktorsritgerðir Íslendinga
Íslensk útgáfuskráÍslensk útgáfuskrá
Skrá og tölfræðigrunnur yfir íslenska bókaútgáfu
KvennasögusafnKvennasögusafn
Vefur Kvennasögusafns Íslands
Miðstöð munnlegrar söguMunnleg saga
Miðstöð munnlegrar sögu
Jónas HallgrímssonJónas Hallgrímsson
Vefur tileinkaður Jónasi Hallgrímssyni og verkum hans
Þýðingar ÍslendingasagnaÞýðingar Íslendingasagna
Skrá yfir erlendar þýðingar Íslendingasagna

Afgreiðslutími

Kvennasögusafn er opið virka daga nema föstudaga kl. 10:00 til 15:00.

SUMARLEYFI til 1. júlí
» Forsíða » Kvennasaga » 8. mars » Saga 8. mars

8. mars á Íslandi

Vissir þú að...

  • … konur fengu ekki kosningarétt í Sviss fyrr en 1971?
  • … Ingibjörg H. Bjarnason var fyrsta þingkona okkar Íslendinga?
  • … Pillan var tekin á lyfjaskrá á Íslandi árið 1967?

 

8. mars á Íslandi

Hér á landi var dagsins sennilega fyrst minnst árið 1932 á fundi Kvennanefndar Kommúnistaflokks Íslands, og síðan árlega eftir það af þeim samtökum og A.S.V. (Alþjóðasamhjálp verkalýðsins). Síðan tók Kvenfélag sósíalista upp þráðinn, en það var stofnað 30. mars 1939. Félagið tengdi saman afmælisdag sinn og 8. mars og minntist dagsins með ýmsum hætti. Á árshátíð Kvenfélags Sósíalistaflokksins 8. mars 1948 flutti t.d. Dýrleif Árnadóttir ræðu um 8. mars og baráttu kvenna gegn stríði og fasisma og Petrína Jakobsdóttir flutti erindi um Alþjóðasamband lýðræðissinnaðra kvenna og baráttu þess gegn stríði og fasisma. Ljóð voru flutt og Guðmunda Elíasdóttir söng við undirleik Fritz Weishappels. Kaffi var drukkið og dans stiginn. Árin 1951 og 1952 gekkst Kvenfélag Sósíalistaflokksins fyrir almennum kvennafundum þann 8. mars þar sem m.a. voru samþykktar ályktanir um að Ísland gengi úr Atlantshafsbandalaginu.

Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna, MFÍK, voru stofnuð árið 1951 og urðu strax deild í Alþjóðasambandi lýðræðissinnaðra kvenna. Þau stóðu fyrir opnum fundi í Stjörnubíó 8. mars 1953 og var fundarefnið kirkjan og friðarmálin. MFÍK hafa síðan minnst dagsins með fundi þar sem ávarp Alþjóðasambandsins hefur verið lesið upp og samþykktar ályktanir í tilefni dagsins. Á þessum fundum hefur fjöldi þjóðkunnra kvenna og karla komið fram og listamenn hafa lagt sitt af mörkum. Þannig flutti Vigdís Finnbogadóttir ræðu um starf hernámsandstæðinga árið 1961 og Þuríður Pálsdóttir söng með aðstoð Jórunnar Viðar á píanó Árið 1966 var haldinn fundur í Lindarbæ og þar flutti Hörður Ágústsson listmálari erindi um þróun íslenskrar byggingalistar frá söguöld til vorra daga og sýndi skuggamyndir.

Baráttan gegn bandarísku herstöðinni og aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu var fyrirferðarmikil á dagskrám MFÍK lengi vel, enda samtökin beinlínis stofnuð til að berjast fyrir friði í heiminum. Andófið gegn Víetnamstríðinu setti nokkurn svip á dagskrána á 7. og 8. áratugunum.

Árið 1978 stóðu MFÍK, Rauðsokkahreyfingin og Kvenfélag sósíalista fyrir dagskrá 8. mars sem bar heitið "Kjör verkakvenna fyrr og nú." Þessi dagskrá var síðar tekin saman í fjölritað hefti og selt. Árið 1984 efndu 8 kvennasamtök til sameiginlegrar dagskrár 8. mars með MFÍK auk þess sem Kvennalistakonur efndu til aðgerða fyrir utan matvöruverslun í Austurstræti og vildu borga 2/3 af uppsettu verði matvara sem þær keyptu. Það sögðu þær vera í samræmi við launamun kynjanna í íslensku samfélagi.

Frá árinu 1984 hefur MFÍK staðið fyrir almennum fundi 8. mars ásamt fjölda annarra samtaka og stéttarfélaga. Fleiri samtök hófu að minnast 8. mars á 10. áratugnum með sérstökum hætti. Samtökin Stígamót voru stofnuð 8. mars 1990. Unifem á Íslandi hefur verið með fundi og á Akureyri hafa samtök minnst dagsins frá árinu 1992.

Heimildir:

  • 8. mars! Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Rauðsokkahreyfingin, Kvenfélag sósíalista og MFÍK, 1978. Kvennasögusafn Íslands.
    Fundargerðabækur Kvenfélags socialista og Sósíalistaflokksins.
    Kvennasögusafn Íslands, öskjur nr. 160 og 161.
    Fundargerðabækur Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna. Kvennasögusafn Íslands, öskjur nr. 95-97.
  • „Nokkur orð um 8. mars“ eftir Elínu Guðmundsdóttur (1912-2003) Kvennasögusafn Íslands, askja nr. 592.
    Blaðaúrklippur um 8. mars í fórum Kvennasögusafns Íslands, askja nr. 348.
  • KVENNASÖGUSAFN ÍSLANDS
  • Kt. 640680-0169
  • Arngrímsgötu 3
  • 107 Reykjavík
  • Sími: 525 5779
  • Netfang:
    kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is

Kvennasögusafn Íslands miðlar þekkingu um kvennasögu og rannsóknir og aðstoðar við öflun heimilda. Það er eina safnið sinnar tegundar á Íslandi. Safnið er sérstök eining í Landsbókasafni, Þjóðarbókhlöðu.